Hafsteinn Michael
Sisyphus snýr aftur
Myndlistarmaðurinn Hafsteinn Michael Guðmundsson opnar sýninguna "Sisyphus snýr aftur" í
gallerí Lost Horse laugardaginn 13.ágúst kl 17 - 19. Sýningin samanstendur af níu
olíumálverkum sem öll eru unnin á þessu ári. Hafsteinn Michael útskrifaðist úr grafíkdeild
Myndlista- og handíðaskóla Íslands vorið 1999. Hann hefur haldið einkasýningar með reglulegu
millibili auk þess að hafa tekið þátt í fjölda samsýninga.
Í sýningunni "Sisyphus snýr aftur" vinnur Hafsteinn Michael með goðsagnir og heimspeki, leit
mannsins að tilgangi andspænis óskiljandi heimi sem er bæði siðlaus og guðlaus. Myndir
Hafsteins eru myrkar og dular og málaðar næstum blindandi og fanga endalausa og vonlitla leit
mannsins að hamingjunni.


