Óskar Ericsson opnar sína fyrstu einkasýningu í Reykjavík
í Gallery Lost Horse, Skólastræti 1, laugardaginn 27. desember kl.
17:00.
Á sýningunni gefur að líta þrjú myndbandsverk sem öll eru unnin á liðnu
ári. Umfjöllunarefni sýningarinar er tvíeðli og óvissa.
Óskar Ericsson nam videólist við AKI Academy of Visual Arts and Design í
Enschede, Hollandi frá 2003-2007, en hann hefur tekið þátt í fjölda
sýninga þar í landi. Hér á landi vakti hann mikla athygli fyrir
vatnsskúlptúr sinn, Þvottakórinn, á síðastliðinni Menningarnótt í
Reykjavík.
Sýningin opnar 27. desember kl. 17:00 og stendur til 5. janúar.
Gallery Lost Horse er opið frá fimmtudegi til sunnudags frá 13-19 og
samkvæmt samkomulagi.
Sýning þessi er styrkt af Löndun ehf.


